Name: Freysi
Home: Akureyri, Iceland
About Me: 13 ára gamalt straubretti frá Akureyri með símaskrá í maganum sem borðar alltaf hafragraut
See my complete profile

sunnudagur, júlí 11, 2004

góðan dag

halló og Hæ dagurinn hjá mér var svonna een það byrjaði þanniog að ég vaknaði við hljóðið í formúlubílunum (þegar Lilja var a horfa á þetta í morgun)en stuttu seinna fór ég að horfa á imbann og borða grautinn minn það var the block og eitthvað fleira síðan horfði ég á óprah það var sko allir úr Shrek2 þenna Eddy murfy, Mike myers, mary poppins konan, Antonia banderas og að sjálfsögðu Cameron Diaz enn ég horfði bara á sjónvarpið í allan dag.

Stuttu seinna var matur og þá borðaðiu ég kjúkling og kartöflur sem var bara got sko enn síðan horði ég á Monk apprentis *frat* og margt fleira enn síðan fékk égg svolítið asnalega hringingu enn hvað með það ég fór síðan bara í tölfuna og stuttu seinna fór ég að skrifa seinna en sé ykkur seinna á efri bílastæði smáralindar þar sem ego stöðin er , þar er satan að rífa hausin af hreindýri sem heitir Bambi ,Bambi er góður í stærðfræði *+++++'''???:::.....BLESS.....:::???'''+++++*

laugardagur, júlí 10, 2004

Maggist ykkur Sölur = góðan daginn

Guden dagen vi call from Köbenhagen. Nei nei ekkert þannig. Það sem gerðist hjá mér í dag var það að ég byrjaði á því að vakna svona upp úr 13:30 minnir mig og síðan borðaði ég og horfði á imbann. Stuttu seinna fórum við út á flugvöll að ná í Systu en síðan fór ég heim og skrapp aðeins í tölvuna og var bara eitthvað að nördast inni á MSN.

Stuttu seinna fór ég á Burger King og fékk mér að borða klukkan svona 19:00 en síðan fór ég á Fame sem var alveg ágætt (marr horfði eiginlega bara á Sveppa, en Jónsi hommast eins og alltaf) en það voru líka tveir menn alveg geðveikt töff, það er Friðrik Þór og kallinn sem leikur Erp Örn. En jæja ég kom síðan heim og fór strax að horfa á imbann og síðan vegna lélegrar sjónvarpsdagskrár kom ég bara í tölvuna og byrjaði að skrifa þetta en sjáumst síðar í innanhústívolíinu í Hverargerði þar sem satan er að höggva af þér hausinn með hárgreiðu sem Janis Joplin notaði fyrir sýninguna sína árið '79. Þarf að fara bæbbbbbbbbb::::::::::::.))))))))))


föstudagur, júlí 09, 2004

Fotki bilaður

Það er til ástæða af hverju það eru svona fáar myndir á linknum Myndir. Það er uppfærsla á Fotki svo restin af myndunum kemur seinnna.

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Ásta babysits meee!!!!!

Jæja blessuð! Í dag byrjaði þetta á öllu saman eins og vanalega. Ég vaknaði eitthvað um klukkan 12 og það var bara fínt. Síðan fór ég í Grasargarðinn í smástund, en svo fór snillingurinn Lilja í tölvuna og fór að leita að húðlækni til að losa mig við þessar bólur einhverjar og viti menn við komumst að. En erfitt var það því við hringdum fyrst á tvo aðra staði (man ekki hvaða) en þar var bara hægt að fá tíma í september og ágúst en við komust að og við áttum tíma klukkan 4 og þetta var allt saman farið og engin sársauki (bara í svona 5-10 min) en ég er ógeðslega feginn að vera laus við þetta drasl því mér var orðið svo illt í þessu og mig klæjaði líka.

En eftir þessa miklu aðgerð fórum við í lúguna hjá Aktu Taktu og keyptum okkur hamborgara að borða og líka franskar og kók en stuttu seinna komum við heim á Kleppsveginn og fengum okkur að borða. Hamborgarann var góður og ég var svakalega svangur. Rétt þegar ég var að fara að taka fyrsta bitann minn í borgarann dinglaði bjallan og það var kallinn sem var að koma með Imbann (sjónvarpið). Gaurinn tengdi þetta að hluta til og Lilja gerði restina. Síðan fórum við bara að horfa á imbann og borðuðum borgarann en síðan stuttu seinna fór ég í tölvuna og fór í Zuma = barnalegasti boltaleikur EVER!!!!! og komst að því að ég er ömurlegur í þessum leik.

Stuttu seinna fór ég heim til Kristínar frænku og Ásta frænka mín átti að passa mig (hún er 8 mánuðum eldri en ég). Við Ásta vorum ein heima í smástund meðan Viktor frændi fór að sækja pizzurnar og þá datt Ástu eitthvað í hug sem kallast slagsmál eða innanhússfótbolti og skíttapaði ALLTAF. Á meðan var heljarinnar veisla niður á Potturinn og Pannan. Þar var verið að halda veislu handa ömmu (sjötug) og þar var öll familían: Kristín, Haukur, Lilja, Gurrý, Erna, Doddi og auðvitað afmælisbarnið, amma. Einar var að vinna svo hann komst ekki.

Ég og Ásta fengum okkur pizzu og Sprite og fórum í ömm .. Singstar og horfðum á þætti og bíómyndir og margt fleira. Síðan voru heljarinnar slagsmál eða sko ég kastaði bolta og sá hann síðan ekkert aftur. Stuttu seinna fórum við Ásta að tína saman 300 kall til að leigja spólu og eftir ítrekaða leit að smáaurum tókst okkur loksins að finna 300 kall fyrir spólu. Síðan gengum við út um dyrnar og þá bamm voru ekki bara þær Lilja og amma úti í bíl að bíða eftir mér akkúrat þegar við ætluðum að fara að leigja spólu svo að ég settist bara upp í bílinn og við keyrðum heim á Kleppsveginn.

Þegar við komum hingað kveiktum við strax á kassanum (sjónvarpinu) og fórum að horfa á tv og gamlar upptökur síðan síðastliðinn þriðjudag þegar Fear Factor var og Las Vegas og margt fleira en síðan fórum við að grenja úr hlátri yfir Still Standing, pældum í því hvernig hægt væri að gera fullkomið morð í CSI: Miami og gerðum grín að beyglunum í Next Americas Topmodel *frat* en strax eftir það settist ég hérna niður og fór að byrja að skrifa þetta en sé ykkur bara eitthvað :*********

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Góðan daginn

Þegar ég vaknaði var ég að hugsa um myndina Cable Guy og viti menn! Það var kominn einhver kall hingað á bæ og var að fara að hirða Imbann okkar (sjónvarpið). Reyndar var hann bara að fara með það í viðgerð (sprakk myndlampinn eða eitthvað, það er óvitað) en kallinn prílaði með imbann víðs vegar um blokkina, eða allar 7 tröppurnar sem eru hérna frammi. En hvað með það....

Stuttu síðar fór ég að borða hafrargraut. Venjulega borðar maður grautinn sinn og horfir á imbann en ekki var hann til staðar þetta skiptið svo menn fóru bara í tölvuna og átu grautinn sinn og allir voru ánægðir og ekkert vesen. Síðar um daginn fórum ég og Lilja frænka eitthvað að stússast á Þingvelli. Var alveg heljarinnar partý (amma átti 70 ára afmæli á þessum drottins dýrðardegi). Skemmtunin var sú að fara á Þingvelli.

Menn voru að skoða margt og mikið var um að vera endar heljarinnar Partey. Við fórum að einhvers konar á sem maður átti að kasta pening út í og óska sér að loknu kasti. Ég kastaði 6 eins krónupeningum og 2 tíköllum. Eftir það fórum við að labba alveg við hliðina á alveg risarstórum kletti eða sko einhverjum hraunstorknuðum háum vegg eða.... man þetta ekki alveg rétt.

Eftir þessa löngu og strembnu göngu var komið að því að koma sér heim, í mat til Kristínar frænku. En ekki var margt að fara að virka hjá okkur því við beygðum eitthvað rangvitlaust og enduðum á eins konar Landarmælartolli hjá Orkuveitu Reykjarvíkur einhvers staðar úti í sveit, ef ég man rétt. Það tók okkur sem sagt um einn og hálfan tíma að komast heim. Venjulegur tími þaðan til Reykjarvíkur er um 30 mínútur en amma tók vitlausa beygju. Loksins komumst við nú í Borg Óttans, skutluðumst í Hagkaup til að kaupa bévítamínið hennar Lilju og brunuðum svo heim til Kristínar klukkan átta. Það var spjallað í stutta stund og margt talað um Þingvelli á þessum merkisdegi.

Stuttu seinna kom að því að fara að borða, en við að sjálfsögðu létum bíða eftir okkur. Forrétturinn búinn að standa á borðinu í tvo tíma eða svo. Í forrétt var fiskur, kál, tómatar, sítrónur og hvítlauksbrauð. Alveg fint, en í aðalrétt var sko kjúklingur alveg rifinn sundur og saman (var eins og að horfa ofan í kartöflumauk svo vel rifinn í sundur var kjúklingurinn). Við borðuðum kjúllann og eins og er hefð í þessari fjölskyldu, fengum við okkur ís í eftirmat.

Klukkan 23:47 ætluðum við að fara heim og koma við í Apótekinu og kaupa skol í harið, veski og margt fleira en stoppuðum stutt þarna því mamma var svo lengi að finna nafnið á kreminu sem ég fékk til að bera á mig um daginn. Sem betur fer ætlar Lilja að fara með mig til læknis á morgun til að láta fjarlægja bletti sem ég er með á öxlinni og bakinu og mér er illt í. Verður sko gott að losna við þá þó mér lítist ekkert á að þeir verði "frystir af".

Brunuðum síðan heim og þá var sett í mig skol af snillingnum Lilju og það heppnaðist bara vel. Núna er það svo weird að það er sko hægt að spegla sig í hárinu mínu. Síðan var maður bara að horfa á imbann og svona (nei, að sjálfsögðu er Imbinn ekki til staðar núna, er í viðgerð) en ég bara sat og var að einhverfast með því að renna rennilási upp og niður og upp og niður (nei nei, engar leiðbeiningar fylgja mér). Síðan fór ég bara í tölvuna í stutta stund á MSN og síðan byrjaði ég að skrifa þetta. Núna verð ég víst að fara að sofa því Lilja stendur hérna á náttfötunum og er að skamma mig fyrir að vera ekki farinn að sofa. Á morgun ætlar hún að kaupa handa mér belti svo ég missi brækurnar sem amma gaf mér ekki niður um mig og svo fer öll familían út að borða til að fagna afmælinu hennar ömmu.


Gangið um gleðinnar dyr með handbremsuna á :)

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Ég held ég sé að fá taugaáfall!!!!!

Ég er alveg merkilega óheppinn. Fór í kvöld með Lilju og Önnu í bíó og ákváðum við, vegna lélegs úrvals í kvikmyndahúsunum þessa dagana, að sjá Mean Girls.

Mér fanns óvenjumikið af gelgjum þarna inni og það var ekkert skrýtið, það sem við hittum akkúrat á Stelpudag í Sambíóunum. Reyndar sá ég eitt stykki strák þarna inni, en hann var augljóslega gay.

Myndin var ágæt og ég fékk fullt af kóki, poppi og nammi, en þessi stelpudagur gæti skilið eftir sig ör á sálinni.

Sjáum til.

Á leiðinni heim komst ég að því að ef reynt var að hringja í gemsann minn, fékk fólk samband við Hilmi, vin minn á Akureyri. Ég var ekki alveg að skilja þetta, þar til Lilja übergáfaða uppgötvaði að ég var með símtalsflutning virkan. Slökkt var á símanum mínum og því fékk hann öll símtöl sem ætluð voru mér. Ágætt samt að fá þetta á hreint því við vorum að fara yfir um við að skilja þetta.

Til að toppa daginn, komumst við Lilja að því þegar við komum heim að sjónvarpið var látið. Við vorum búin að hlakka mikið til þess að horfa á Fear Factor og fleira, en sjónvarpið var steindautt. Meira að segja Jón ljósmyndari og tölvuséni gat ekki hjálpað okkur og hughreystingar Önnu, "lesið bara bók", voru ekki að virka. Ég les engin ósköp nema ég nauðsynlega þurfi.

Redduðum sjónvarpsfíkninni með því að leigja Freaky Friday á DVD og glápa á hana í tölvunni. Ég er samt ekki sáttur, því það er orðin hefð hjá okkur Lilju að horfa á Nátthrafnana á Skjá Einum. Hlæjum að Still Standing, höldum niðri í okkur andanum yfir CSI: Miami og gerum óspart grín að beyglunum sem eru að taka þátt í keppninni um næsta ofurmódel Bandaríkjanna (ekkert smá stupid þáttur!).

Sem sagt: MJÖG erfiður dagur!

mánudagur, júlí 05, 2004

Andri the babysitter

Ég hef komist að því að ég hef vissan hæfileika og það er barnapössun.

Halldóra Björk, 6 ára frænka mín, fékk að gista hérna á Kleppsveginum og hún dýrkar mig. Étur upp eftir mér hvert einasta orð og mér til furði nenni ég að svara endalausum spurningum um af hverju himininn sé blár og hvort fólkið sem er skotið í sjónvarpinu sé raunverulega dáið.

Hún þreytist heldur ekki á að garga á mig. Ekki í þeim skilningi að hún sé eitthvað ósátt, heldur finnst henni ég óendanlega fyndinn. Oftast er ég bara að bulla í henni en það er sama hvað ég segi, hún gargar úr hlátri.

Skrítinn skítur það.

En hér er mynd af okkur saman. Hún var að reyna að kyssa mig góða nótt en ég lét hana hafa fyrir því. Til að gera langa sögu stutta, tókst henni það með hjálp hinnar ofbeldishneigðu Lilju sem hjálpaði henni að yfirbuga mig.

Spurning um að hringja í Barnaverndarnefnd?



Hún gefst ekki upp....



.... svo á endanum gafst ég upp