Ég held ég sé að fá taugaáfall!!!!!
Ég er alveg merkilega óheppinn. Fór í kvöld með Lilju og Önnu í bíó og ákváðum við, vegna lélegs úrvals í kvikmyndahúsunum þessa dagana, að sjá Mean Girls.
Mér fanns óvenjumikið af gelgjum þarna inni og það var ekkert skrýtið, það sem við hittum akkúrat á Stelpudag í Sambíóunum. Reyndar sá ég eitt stykki strák þarna inni, en hann var augljóslega gay.
Myndin var ágæt og ég fékk fullt af kóki, poppi og nammi, en þessi stelpudagur gæti skilið eftir sig ör á sálinni.
Sjáum til.
Á leiðinni heim komst ég að því að ef reynt var að hringja í gemsann minn, fékk fólk samband við Hilmi, vin minn á Akureyri. Ég var ekki alveg að skilja þetta, þar til Lilja übergáfaða uppgötvaði að ég var með símtalsflutning virkan. Slökkt var á símanum mínum og því fékk hann öll símtöl sem ætluð voru mér. Ágætt samt að fá þetta á hreint því við vorum að fara yfir um við að skilja þetta.
Til að toppa daginn, komumst við Lilja að því þegar við komum heim að sjónvarpið var látið. Við vorum búin að hlakka mikið til þess að horfa á Fear Factor og fleira, en sjónvarpið var steindautt. Meira að segja Jón ljósmyndari og tölvuséni gat ekki hjálpað okkur og hughreystingar Önnu, "lesið bara bók", voru ekki að virka. Ég les engin ósköp nema ég nauðsynlega þurfi.
Redduðum sjónvarpsfíkninni með því að leigja Freaky Friday á DVD og glápa á hana í tölvunni. Ég er samt ekki sáttur, því það er orðin hefð hjá okkur Lilju að horfa á Nátthrafnana á Skjá Einum. Hlæjum að Still Standing, höldum niðri í okkur andanum yfir CSI: Miami og gerum óspart grín að beyglunum sem eru að taka þátt í keppninni um næsta ofurmódel Bandaríkjanna (ekkert smá stupid þáttur!).
Sem sagt: MJÖG erfiður dagur!


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home